Auglýsing um úthlutun
aflaheimilda til áframeldis á þorski á fiskveiðiárinu 2010/2011.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra auglýsir eftir umsóknum um úthlutun
aflaheimilda til áframeldis á þorski, sbr. reglugerð nr. 736/2009, um úthlutun
aflaheimilda í þorski vegna tilrauna við föngun fisks til áframeldis og
framkvæmd þess.
Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 31. mars 2010.
Umsóknum skal skila til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4,
150 Reykjavík og einnig skal senda umsóknir með rafrænum hætti á netfangið
postur@slr.stjr.is.
Umsóknir skulu merktar sem “Þorskeldiskvóti”.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,
17. mars 2010.